Vikupóstur
Upplýsingatækni í skólastarfi - 15. september 2020.
Tilkynningahnappur, jafningjafrædsla og menntabúdir.
Í vikunni var settur inn í spjaldtölvur 5. - 10. bekkja tilkynningarhnappur þar sem bönum og ungmennum er auðveldað að koma ábendingum sínum á framfæri til barnaverndar. Spjaldtölvan er með þessu skrefi ekki eingöngu nýtt sem námsgagn heldur einnig til að auðvelda tengsl nemenda við barnavernd ef þau vilja koma ábendingum á framfæri.
Unnið er að því þessa dagana að skipuleggja starfsþróunarnámskeið og fyrirlestra fyrir kennara. Skipulagið byggir einkum á auglýstri dagskrá "Í startholunum" sem frestað var vegna óvissuástands í upphafi skólaárs. Nú þegar erum við farin að auglýsa fyrirlestra á mánudögum.
Í næstu viku fer fram UtísOnline þar sem fyrirlesarar hvaðanæva að flytja erindi rafrænt sem eiga erindi til kennara sem vilja efla sig í kennslustarfi í takt við tækniþróun.
Menntabúðir #Kópmennt hefur verið frestað að sinni og fólk hvatt til að sækja UtísOnline og aðra auglýsta viðburði sem tengjast UT í skólastarfi. Stýrihópur menntabúða mun koma saman og leita leiða til að styðja við jafningjafræðslu um UT í skólastarfi í Kópavogi.
Neðst í vikupóstinum er að finna fyrri vikupósta. Þú getur einnig gerst áskrifandi á Workplace með því að skrá þig í hópinn "Vikupóstar verkefnisstjóra í UT í skólastarfi".
Kveðjur bestar;
Bergþóra Þórhallsdóttir
verkefnisstjóri UT í skólastarfi á grunnskóladeild.
Læsisfimman - fjarkynning í Meet
Skráning er mikilvæg og fer fram í hnappnum hér fyrir neðan.
Nýir kennarar og spjaldtölvur í kennslu
3. hluti - mánudaginn 21. september kl. 15:00 - 16:00.
Fjarfundurinn fer fram í Google Meet og verður nýjum kennurum sent fundarboð fyrir hvorn fund.
Tilkynninga- hnappur
Skólabörn í 5. til 10. bekk í Kópavogi geta frá og með 11. september haft samband við Barnavernd Kópavogs með því að smella á hnapp í spjaldtölvunni sinni. Öll börn í Kópavogi á þessum aldri fá spjaldtölvu til afnota og með því að setja hnappinn í tölvuna er börnum auðveldað að koma ábendingum sínum á framfæri.
Hnappurinn opnar aðgang að síðu þar sem börn geta lýst líðan sinni, áhyggjum eða aðstæðum og óskað eftir aðstoð frá barnavernd fyrir sig sjálf eða önnur börn.
Í tengslum við innleiðingu tilkynningahnappsins hafa verið búin til tvö myndbönd; annað fyrir foreldra og hitt fyrir börn. Foreldrar skólabarna fá sent upplýsingabréf frá skólayfirvöldum 4.september þar sem tilkynningarhnappurinn er kynntur. Í því er einnig vísað á myndband sem segir frá tilkynningarhnappnum.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband
Skólabörn fá svo fræðslu dagana 10. - 11.september um tilkynningarhnappinn, tilgang hans og hlutverk barnaverndar.
Tilkynningarhnappurinn er hluti af innleiðingarferli Barnasáttmála SÞ í Kópavogi og byggir ekki síst á 12.greininni sem fjallar um tækifæri barna til að tjá sig. Þá er hann samþættur kynningarátaki um mikilvægi barnaverndar sem hleypt var af stokkunum síðastliðið vor og er ætlað að minna fólk á að hafa vakandi auga með velferð barna.
UtísOnline
Skráning er á: www.utis.online/skraning
Búið er að klippa alla fyirlestra, verið er að texta þá á íslensku, ígrundunarbókin er í prentun og allt að gerast!
Þetta verður fjör 🎉 með 15 fyrirlestrum um upplýsingatækni, skólaþróun og nýsköpun í skólastarfi frá 13-16 á fös (25.sept) og 10-15 laugardaginn 26.sept.
Hægt er að taka þátt hvaðan sem er, en 70+ íslenskir skólar hafa skráð þátttökupartý. Þá er að finna hér: www.utis.online/party
Sjáumst á netinu 25.sept 🌿 In
Apple school manager
Tæknistjórinn okkar, Garðar Þór Ingvarsson, veitir nemendum og kennurum aðgang að ýmis konar Apple þjónustu í gegnum þetta kerfi. Tækin eru sett upp í Apple school manager og þaðan er forritum og rafbókum framvegis stýrt sem fara inn í spjöldin.
Óski kennari eftir aðgangi fyrir nemendur sína að fríu appi sem grunnskóladeild mælir með verður hægt að nálgast það í App store þar sem tæknistjóri stýrir aðgangi að leyfðum námsöppum.
Ef kennari óskar eftir keyptum aðgangi að appi eða á vefsvæði þarf skólastjóri að senda UT-beiðni þess efnis til tæknideildar sem afgreiðir beiðnina.
Áhættumat fer fram á öppum sem verið er að nota í grunnskólum Kópavogs í samstarfi við nágrannasveitarfélögin. Sú vinna er í fullum gangi og hafa þegar verið greind 735 öpp. Þau öpp sem eru rauðmerkt í matinu eru nú um þessar mundir skoðuð sérstaklega og verða ráðleggingar sendar út í skólana í kjölfarið. Samband íslenskra sveitarfélaga er í samstarfi við sveitarfélögin um vinnslu áhættumatsins. Meira um þetta á næstunni.
Fyrri Vikupóstar
8. september 2020 Foreldrakynningar.
25. ágúst 2020 Skólabyrjun á óvissutímum.
23. janúar 2020
31. janúar 2020
7. febrúar 2020
14. febrúar 2020
21. febrúar 2020
28. febrúar 2020
Upplýsingatækni í skólastarfi í grunnskólum Kópavogs.
Email: beggath@kopavogur.is
Website: https://spjaldtolvur.kopavogur.is/
Location: Digranesvegur 1, Kópavogur, Iceland
Phone: 441-2307
Facebook: https://www.facebook.com/groups/360092074179541/
Twitter: @kopSpjold