Knattspyrnu- akademía
Knattspyrnudeild Þróttar og Knattspyrnuakademía Norðurlands
Hvenær
Dagana 26. og 27. september næstkomandi heldur Knattspyrnuakademía Norðurlands í samvinnu við Knattspyrnudeild Þróttar spennandi námskeið fyrir alla fótboltakrakka í 3. - 8. flokki.
Hver
Námskeiðshaldari hefur mikla menntun og reynslu af þjálfun barna og unglinga og haldið fjölmörg námskeiða víðsvegar um landið, s.s. Ísafirði, Neskaupstað, Dalvík, Akureyri, Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd o.fl... við kynnum... Þórólf Sveinsson... https://www.facebook.com/watch/?v=2270127689911083
Hvað
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessa þætti skiptir miklu máli að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar, skallar, tækni, 1vs1 o.s.frv.
Skipt verður í tvo hópa, yngri og eldri.
Yngri hópur, 6. – 8. flokkur mætir 10:30 – 12:15 báða dagana
Eldri hópur, 3. – 5. flokkur mætir 12:30 – 14:15 báða dagana
Skráning og verð
Skráning fer fram á hér í Google forms... eða bara á þessari slóð: https://forms.gle/X82pTAGnGUyvQfVu5
Skráning þarf helst að berast fyrir fimmtudagskvöldið 24. september, betra er að þeir sem eru ákveðnir að skrá sig geri það sem fyrst uppá skipulag og fjölda þjálfara
Knaatspyrnuakademía
Dagana 26. og 27. september næstkomandi heldur Knattspyrnuakademía Norðurlands í samvinnu við Knattspyrnudeild Þróttar spennandi námskeið fyrir alla fótboltakrakka í 3. - 8. flokki.
Námskeiðshaldari hefur mikla menntun og reynslu af þjálfun barna og unglinga og haldið fjölmörg námskeiða víðsvegar um landið, s.s. Ísafirði, Neskaupstað, Dalvík, Akureyri, Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd o.fl.
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessa þætti skiptir miklu máli að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar, skallar, tækni, 1vs1 o.s.frv.
Saturday, Sep 26, 2020, 10:30 PM
Mýrargata 8, Neskaupstadur, Iceland
Umsagnir um námskeið Knattspyrnuakademíu Norðurlands
„Ég lærði nýjar og skemmtilegar æfingar og nýja tækni. Gaman að gera nýjar og öruvísi æfingar en maður er vanur að gera með sínu félagi. Ég mæli með þessu námskeiði því að það er ekki æfingin sem skapar meistarann heldur aukaæfingin“.
„Til þess að verða betri en aðrir í einhverju þarftu að stunda það meira en allir aðrir. Ég fór í knattspyrnuakademíuna á sínum tíma því mig langaði að leggja meira á mig og læra eitthvað nýtt. Ný reynsla, bætingar og góður félagsskapur var eitt af mörgu sem að ég tók með mér heim af námskeiðinu“.