Föstudagspóstur
4. og 5. bekkur
Skólastarfið í liðinni viku
Skólastarfið er komið í góða rútínu. Nemendur vinna af kappi í áætlunum sínum og margir eru búnir að taka kannanir í stærðfræði. Árangur úr könnunum er færður inn í Mentor, þar sem merkt er við markmið.
Þemavinnan er farin vel af stað. Nemendur munu vinna í sérfræðingahópum sem hver fjallar um ákveðið efni úr goðafræðinni og mun svo kynna það fyrir öðrum nemendum í lok þemans.
Atli tók umsjónarhópa Grétu og Anítu í 4. bekk í útikennslu. Þau fóru upp í Naustaborgir, þar sem grilluð voru snúbrauð yfir opnum eldi. Ákveðið hefur verið að hafa útikennslu hvern föstudag og næstu tvo föstudaga munu umsjónarhópar Kristínar og Þóru fara með Atla út.
Leikhús fyrir 4. bekk
Miðvikudaginn 16. október er nemendum 4. bekkjar boðið á leiksýninguna Galdragáttin og þjóðsagan sem sýnd er hjá Leikfélagi Akureyrar.
Haustfrí
Haustfrí verður 17. og 18. október.
Jákvæður agi
Fáðu börnum hlutverk. Það eykur ábyrgðartilfinningu þeirra.
Kveðja og ósk um góða helgi
Atli, Aníta, Fannar, Gréta, Kristín, Margrét og Þóra
Email: anitaj@akmennt.is
Website: http://naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/