Fréttabréf Norðlingaskóla
1. apríl 2019
Efni þessa fréttabréfs:
- Dagur einhverfunnar 2. apríl
- Svart/hvítur dagur og söngstund fyrir alla 5. apríl
- Stóra upplestrarkeppnin
- 10. bekkur æfir Galdrakarlinn í Oz
- Dregið úr lestrarátaki Ævars vísindamanns og lestrarsprettur 29. apríl-3. maí
- Skólahreysti og boðsundkeppni grunnskóla
- Páskaleyfi og sumardagurinn fyrsti
- 4. bekkur á Barnamenningarhátíð 9. apríl
Dagur einhverfunnar 2. apríl
Nú er blár apríl hafinn sem er vitundar- og styrktarátak til stuðnings og samstöðu með einhverfum. Af því tilefni eru börn og fullorðnir hvött til að klæðast bláu þriðjudaginn 2. apríl. Við í Norðlingaskóla tökum að sjálfsögðu þátt í þessu átaki og hvetjum alla til að klæðast bláu þennan dag. Hér má lesa nánar um Bláan apríl.
Svart/hvítur dagur og söngstund fyrir alla 5. apríl
Við í Norðlingaskóla erum dugleg að brjóta upp skólastarfið með ýmsum hætti og notum fyrsta föstudag í mánuði gjarnan til þess. Föstudaginn 5. apríl er svart/hvítur dagur og jafnframt söngstund fyrir alla nemendur í aðalbyggingu klukkan 8:15.
Stóra upplestrarkeppnin
Anna Eir og Gunnar voru fulltrúar 7. bekkjar í Norðlingaskóla í Stóru upplestrarkeppninni í Árbæjarkirkju þann 21. mars. Þau stóðu sig bæði frábærlega og Anna Eir lenti í 3. sæti. Til hamingju Gunnar og Anna Eir!
10. bekkur æfir Galdrakarlinn í Oz
Nemendur í 10. bekk standa í ströngu þessa dagana við að setja upp söngleikinn Galdrakarlinn í Oz. Æft er af miklu kappi en sýningar verða í kringum mánaðarmótin apríl/maí og verða auglýstar þegar nær dregur. Nemendur í 1.-4. bekk fengu að sjá smá sýnishorn á söngstund s.l. föstudag.
Dregið úr lestrarátaki Ævars vísindamanns og lestrarsprettur 29. apríl-3. maí
Lestrarátak Ævars vísindamanns stóð yfir frá 1. janúar til 1. mars. Því miður hlaut enginn í Norðlingaskóla þann heiður að verða persóna í næstu bók Ævars en Þórdís á bókasafninu dró þó út nokkra heppna nemendur sem munu fá bókina hans Ævars að gjöf þegar hún kemur út í vor. Ævar sjálfur dró svo út einn nemanda í Norðlingaskóla sem hann mun veita viðurkenningu en það var Vigdís Hekla í 1. bekk sem var sú heppna.
Næsta átak varðandi lestur er svo ekki langt undan því það verður lestrarsprettur í Norðlingaskóla vikuna 29. apríl-3. maí.
Skólahreysti
Glæsilegir fulltrúar Norðlingaskóla tóku þátt í Skólahreysti þann 21. mars. Okkar fólk stóð sig frábærlega og lenti í 3.-4. sæti í sínum riðli.
Boðsundkeppni grunnskóla
Boðsundkeppni grunnskóla var haldin þriðjudaginn 26. mars í Laugardalslaug. Frá Norðlingaskóla fóru tvö lið á miðstigi og eitt á unglingastigi og stóðu þessir efnilegu og frambærilegu nemendur okkar sig afskaplega vel.
Páskaleyfi og sumardagurinn fyrsti
Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí er föstudagurinn 12. apríl og kennsla hefst aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 23. apríl. Sú vika verður í styttra lagi því fimmtudagurinn 25. apríl er sumardagurinn fyrsti og því frídagur.
4. bekkur á Barnamenningarhátíð 9. apríl
Dagana 9.-14. apríl er Barnamenningarhátíð í Reykjavík. Að vanda tekur 4. bekkur þátt í setningarathöfn hátíðarinnar sem verður í Eldborgarsal Hörpu þann 9. apríl. Á hátíðinni verður fjöldi viðburða í boði fyrir alla fjölskylduna víðsvegar um borgina. Á heimasíðu hátíðarinnar er hægt að nálgast dagskrána og allar upplýsingar.
Hér að neðan má sjá glænýtt lag og myndband barnamenningarhátíðarinnar í ár en lagið er eftir Jón Jónsson og texti eftir Braga Valdimar Skúlason. Lagið varð til í samstarfi við 4. bekkinga í grunnskólum Reykjavíkurborgar en þau svöruðu spurningum um hverjir draumar þeirra væru, fyrir þau sjálf, aðra og fyrir allan heiminn en yfirskrift nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar er einmitt ,,Látum draumana rætast".
https://www.youtube.com/watch?v=JS9w5xnmhVg
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli