Vikan 30.mars - 3.apríl
Samantekt á vikunni
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Þá er síðustu vikunni lokið fyrir páskafrí og hefur hún gengið vel. Það var fámennt en góðmennt og stóðu nemendur sig með prýði að fara eftir fyrirmælum og vinna í kennslustundum.
Við viljum minna á fyrri vikuáætlanir inn á Classroom, þar sjáið þið hvaða verkefni liggja fyrir og hverju nemendur eiga að skila inn. Það munu ekki koma inn vikuáætlanir á meðan á páskafríinu stendur en við hvetjum nemendur til að klára þær áætlanir sem nú þegar hafa verið settar fyrir.
Að öllu óbreyttu hefst skólastarf aftur miðvikudaginn 15.apríl frá kl.8:40 – 12:00. Eigi síðar en þriðjudaginn 14.apríl þarf að senda á okkur póst um þá nemendur sem hafa verið að vinna heima fyrir en ætla að mæta í skólann að loknu páskafríi.
Við hvetjum nemendur til að vera dugleg að lesa heima yfir páskana
Við óskum ykkur gleðilegra páska, njóta samverunnar og ferðast innanhúss!
Ykkar,
Arna Ýr, Guðrún Valdís, Herdís, Inga Vala, Jason og Paula