VAL FYRIR VORÖNN 2024

VALTÍMABIL 05.10. - 13.10.2023

Val fyrir vorönn 2024

Kæru nemendur


Nú er komið að vali fyrir vorönn 2024. Hér fyrir neðan geturðu kynnt þér allt um valið en valið sjálft fer fram í gegnum INNU.


Allir nemendur í dagskóla sem ætla að halda áfram námi þurfa að velja áfanga fyrir næstu önn. Ekkert val þýðir engin stundatafla! Nemendur þurfa að velja 1 áfanga í varaval.


Fjarnemendur með MÍ sem heimaskóla, sem ætla að halda áfram fjarnámi við skólann og borga fyrir fjarnámið, geta líka valið áfanga.


Nýnemar fá aðstoð við valið í NÁSS1NN03. Allir nemendur geta auk þess fengið aðstoð við valið hjá áfangastjóra eða námsráðgjafa. Hægt er að panta tíma hjá ritara eða með því að smella hér.


Væntanleg útskriftarefni: Nemendur sem ætla að útskrifast í maí 2024 þurfa að panta tíma hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið. Hægt er að panta tíma hjá ritara eða með því að smella hér.


Dagskólanemendur sem ætla ekki að vera við nám á vorönn þurfa að láta áfangastjóra vita (martha@misa.is)

Nemendur á 1. ári

Nemendur á 2. ári

Nemendur á 3.- 4. ári

BUNDIÐ ÁFANGAVAL OG VALÁFANGAR

Hér er hægt að sjá alla áfanga sem í boði eru í bundnu áfangavali og vali.

Menntaskólinn á Ísafirði