Vikupistillinn
Tímabilið 11. - 17. mars 2019
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Leikstjórar í miðdeild, sjá skipulag vorannar.
- Leikstjórar í 3. og 4. bekk, sjá skipulag vorannar.
- Starfmannasamtölin eru nú að hefjast, sjá skipulag hjá stjórnendum.
- Á næstu dögum hefja stjórnendur innlit sitt í kennslustundir. Þeir munu boða komu sína með smá fyrirvara og senda kennurum tölvupóst.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni. Stjórnendur munu koma í stofur með blað til að hengja upp í öllum heimastofum.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið - hér má nálgast nemendaviðtalsblað fyrir sérgreinakennara. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Widgit Online er er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 11. mars
- Samræmd könnunarpróf hjá nemendum í 9. bekk í íslensku. Prófað verður í tölvustofunni og stofu 31 (sérkennslustofu). Færa þarf alla kennslu úr þessum stofum. Hér má finna skipulag í kringum prófin. Tilfærslur kennslu og yfirsetutafla.
- Verið - elsta deild - Bíókvöld.
Þriðjudagurinn 12. mars
- Samræmd könnunarpróf hjá nemendum í 9. bekk í stærðfræði. Prófað verður í tölvustofunni og stofu 31 (sérkennslustofu). Færa þarf alla kennslu úr þessum stofum.
- Samvera hjá miðdeild sem nemendur í 6. bekk sjá um.
- Nemendur í 10. bekk fara í starfsfræðslu.
- kl. 10:00 er fundur hjá leikstjórum í miðdeild í stofu 36.
- Fræðslan Sjúk ást verður fyrir nemendur í 8. bekk. Umsjónarkennarar mæta með nemendur í fyrirlestarsalinn kl. 12:50.
- Á fundatíma þann verður Kristrún með seinni hlutann af erindinu frá því á starfsdaginn í fyrirlestarsalnum. Glærur eru hér og á sameign: S:\Fundargerðir\Kennarafundir\2018-2019
Miðvikudagurinn 13. mars
- Samræmd könnunarpróf hjá nemendum í 9. bekk í íslensku. Prófað verður í tölvustofunni og stofu 31 (sérkennslustofu). Færa þarf alla kennslu úr þessum stofum.
- Samvera hjá yngstu deild sem nemendur í 2. bekk sjá um.
- Nemendur í 10. bekk fara í starfsfræðslu.
- Leikstjórar verða á leikjanámskeiði frá kl. 8:20 - 11:20.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:00.
- Verið - miðdeild - Hæfileikakeppni.
- Verið - elsta deild - Opið hús.
Fimmtudagurinn 14. mars
- Leikstjórar í 3. og 4. bekk á námskeiði í stofu 36 kl. 10:40
- Fræðslan Sjúk ást verður fyrir nemendur í 9. og 10. bekk kl. 10:50 í fyrirlestarsalnum.
- Á fundartíma eru teymisfundir.
Föstudaginn 15. mars
- Nemendur í 9. og 10. bekk fara á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu ásamt umsjónarkennurum sínum, náms- og starfsráðgjafa og Einari Karli stuðningsfulltrúa. Rúta frá Hvaleyrarskóla kl. 9:40 og frá Laugardalshöll kl. 12:15. Sjá hér tilfærslur á kennslu kennara.
- Fundur hjá lausnateyminu kl. 13:30.
- Fræðslufundur í Álfhólsskóla, kl. 14:00 - 16:00 þar sem kennarar segja frá heimsókn sinni í skandinavíska grunnskóla.
- Verið - miðdeild - Skotbolti.
- Verið - elsta deild - Unglingar gegn ofbeldi.
Nýir nemendur
Það eru nokkrir nemendur sem eru að byrja hjá okkur í skólanum á mánudaginn 4. mars, en þeir eru:
- Ríkarður Magni Helgason sem fer í 2. RAG en hann kemur úr Lágafellsskóla
- Lilja Kolbrún Eiríksdóttir sem fer í 3. MI en hún kemur úr Sæmundarskóla
- Bjarki Hrafn Eiríksson sem fer 6. EBJ en hann kemur újr Sæmundarskóla
- Alexandra Kristín Eiríksdóttir sem fer í 8. MK en hún kemur úr Sæmundarskóla
- Þórður Örn Hauksson sem fer í 6. SL en hann kemur úr Háaleiti sem er skóli á Reykjanesi.
Fréttir frá Bjargi
- Systurnar Amena 1. BÆ og Malak 4. NBS hafa nú fengið landvistarleyfi. Þær eru fluttar til Reykjavíkur og hafa því lokið skólagöngu sinni í Hvaleyrarskóla.
- Lujano og Pal í 10. SB byrja í íþróttum, ensku og stærðfræði með sínum bekkjum frá og með þriðjudeginum 5. mars.
- Hana 9. MS er byrjuð í jóga og í bökunarvali.
- Law í 10. GB byrjar í íþróttum í næstu viku.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í mars
Andrea á afmæli þann 9. mars, Íris þann 10. mars, Kristján B. þann 12. mars, Freyja þann 14. mars, Guðrún Árný þann 23. mars og Nína þann 27. mars. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Við erum að vinna að heilsuhorni.
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Forinnritun nýnema sem eru að útskrifast úr 10.bekk er 8. mars – 13. apríl.
100 - miðaleikurinn hefst þann 18. mars og lýkur þann 22. mars.
Þann 20. mars fara nemendur í 4. og 5. bekk á List fyrir alla í Bæjarbíó.
Þann 20. mars er Skólahreystikeppnin í íþróttahúsinu að Ásvöllum.
Þann 21. mars kl. 14:00 - 15:30 er stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hafnarfirði haldin í Flensborgarskólanum. Keppnin er ætluð fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Þann 25. mars er fræðslufundur sem fer fram í Álfhólsskóla þar sem grunnskólakennarar kynna skólaheisóknir sínar í skandinavíska grunnskóla. Þess má geta að Margrét Ýr mun halda erindi á þessum fundi.
Þriðjudaginn 26. mars er fundur hjá leikstjórum kl. 10:00 í stofu 36.
Þann 26. mars er boðsundskeppni grunnskólanna í Laugardalslaug.
Þann 26. mars kl. 12:40 fá nemendur í 10. bekk fræðslu frá Fjármálaviti.
Nemendur í 10. bekk fara á Skólaþing, 10. SB þann 2. apríl og 10. GB þann 5. apríl.
Lokahátíð stóru upplestarkeppninnar er í Hafnarborg kl. 17 þann 2. apríl.
Nemendur í 10. SB verða með BING'O þann 3. apríl.
Þann 24. apríl syngja nemendur í 3. bekk inn sumarið á Björtum dögum á Thorsplani.
Námskeið á vegum Fræðslu- og frístundasviðs
- UT menntabúðir - jafningjafræðsla - samræða - tengslanet. Verður haldið í Víðistaðaskóla mánudaginn 11. mars kl. 14:30 - 16:00.
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200