Föstudagspóstur
Vikan 2.- 6. mars 2020
Vikupóstur
Sæl öll,
Allt komið í blússandi gang hjá okkur eftir vetrarfrí.
Á miðvikudag var Skólahreysti og gekk það vel. Þeir nemendur sem tóku þátt fyrir okkar hönd stóðu sig með prýði.
2.apríl n.k. er svo árshátíð Naustaskóla og erum við byrjuð að undirbúa okkur undir það.
Í næstu viku, þri,mið og fim, eru svo samræmd próf hjá 9. bekk. Þessir dagar eru hefðbundnir að öðru leyti.
Að lokum viljum við hvetja foreldra sem eru að skutla börnum sínum í skóla á morgnanna að sleppa þeim út við stoppustöðvar sem eru tvær við skólann. Ástæðan er sú að koma í veg fyrir örtröð sem getur myndast á ákveðnum tímum.
Eigið góða helgi
Unglingadeildarteymið