HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 29. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 25. APRÍL - 1. MAÍ
MÁNUDAGUR 25. APRÍL
Fyrirlestur um gildi hreyfingar fyrir nemendur í 8. -10.bekk
Nemendaverndaráðsfundur í Bs kl. 8:30
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL
Námskeið/fyrirlestur í tengslum við grunnskólabörn sem eiga annað móðurmál en íslensku kl.13:00 - 16:00 í Hs
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL
Foreldrafundur vegna lokaverkefnis í 10.bekk í salnum kl. 11:30
Fagfundur í samfélagsfræði í þessari viku, fagstjóri auglýsir fundinn.
Deildarfundur í báðum húsum kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL
Skólastjórnendur verða á vorfundi Skólastjórafélags Suðurlands
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL
Skólastjórnendur verða á vorfundi Skólastjórafélags Suðurlands
Takk fyrir góða viku
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Skóladagur Hamarsskóla verður 4. maí, hefst kl. 16:30 í Íþróttamiðstöðinni með lúðrablæstri og dansi.
- Vorskóli fyrir væntanlega nemendur 1. bekkja verður 9. og 11. maí. Kynningarfundur fyrir foreldra verður þriðjudaginn 24. maí kl. 17:15 í sal Hs.
- Hópforeldrafundur fyrir foreldra nemenda í 3. bekk verður kl. 12:00 miðvikudaginn 11. maí í sal Hs. og fyrir foreldra nemenda í 6. bekk ??
- Dansað í Bárugötunni verður föstudaginn 20. eða 27. maí, fer eftir veðri.
- Lokaverkefni í 10. bekk 20. maí -2. júní
- UNICEF - hreyfingin, verkefni 5. og 6. bekkja verður á Stakkó í vikunni 23. - 27. maí, fer eftir veðri.
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk 1. -3. júní
- Allt um nýtt námsmat á þessari slóð: http://vefir.nams.is/namsmat/index.html
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngstastigi verða 1. og 2. júní.
- Allt starfsfólk á mið- og yngstastigi er hvatt til að horfa á youtubemyndböndin frá Vogaskóla til að kynna sér hvernig þessir leikar fara fram. Hér eru linkarnir https://www.youtube.com/watch?v=acXY8JdTR7E - https://www.youtube.com/watch?v=4shl5kPhEnc
Tilkynningar !!
Námskeið/fyrirlestur fyrir kennara verður þriðjudaginn 26. apríl kl.13:00 - 16:00 í Hs. Sigríður Ólafsdóttir kennari/doktor mun kynna rannsókn sína á Þróun orðaforða og lesskilingi íslenskra grunnskólanema sem eiga annað móðurmál en íslensku og Hulda Karen Daníelsdóttir, verefnastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða verður með vinnusmiðjur fyrir kennara.
Skólastórnendur verða á vorfundi Skólastjórafélags Suðurlands dagna 28. og 29. apríl, Ásta Júl verður staðgengill í Hamarsskóla, Unnur Bald í Barnaskóla.
Námsgagnastofnun- fræðslumyndbönd. Það er búið að vera vesen að spila fræðslumyndbönd á www.nams.is. Það þarf að fara inn á gömlu síðuna, þetta er linkurinn http://www.nams.is/forsida/ og vera á Explorer ekki á Crome. Það er unnið að því að setja upp spilara á nýju síðuna hjá þeim.
GRV fræðsla- kennarar eru duglegir að setja inn efni á GRV fræðslu facebook síðuna, endilega skoðið hana. https://www.facebook.com/groups/985308401484961/?fref=ts
Kennarar og nemendur í 5. bekk eru byrjaðir að undirbúa hlutaveltuna fyrir skóladaginn, ef starfsfólk þarf að losa sig við eigulega hluti þá eru þeir vel þegnir.
Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:15. Kennarar eru beðnir um að hvetja sína nemendur til að nota sér þessa aðstoð. Drífa Þöll sér um þetta verkefni en það eru sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum ásamt nemendum úr FÍV sem sjá um að láta nemendurna lesa.
Afmælisbörn næstu viku:
Ester Sigríður 27. apríl, hún verður 40 ára
Guðbjörg Lilja 27. apríl
Jóhanna Njálsd 27. apríl
Limra vikunnar
Ljúft er að láta sig dreyma
og líða um heima og geima.
En það er helvíti hart
að hugsa svo margt
að það hafist ekki undan að gleyma.
Kristján Eldjárn
Svar við síðustu gátu vetrarins
Háls
Spakmæli vikunnar
Uppskrift vikunnar
- 1x stór kotasæludós
- 1x mild salsasósa
- 1x rauð paprika
- 1x græn paprika
- 3/4 af ágúrku
- 2x tómatar
- 1x rauður laukur
That's it!
Kotasælan neðst - salsasósan yfir - og svo grænmetið ofaná, fallegir litir og ljúffengt með hrökkbrauði eða snakki svona þegar að maður vill gera vel við sig :o)
Bingó
Skóladagurinn
Grínmyndataka
Stærðfræðimyndbönd
Ótrúlega margar góðar hugmyndir um stærðfræði og hvernig opna á samærðuna um stærðfræði.