Fréttabréf Hörðuvallaskóla
janúar 2022
Kæra skólasamfélag
bestu kveðjur
Þórunn Jónasdóttir
skólastjóri
Skráningar í Mentor vegna sóttkvíar og sjálfskipaðrar sóttkvíar
Þegar þið skráið forföll barna ykkar inn á Mentor hafið þið bara val um að skrá veikindi og leyfi fyrir einn dag í senn. Margir skrá því veikindi eða leyfi þegar barnið er í sóttkví en það er mikilvægt að við fáum upplýsingar þannig að við getum leiðrétt skráninguna og breytt henni í sóttkví. Ástæða þessa er sú að þið eigið rétt á leiðréttingu gjalda á hádegismat og frístundagjaldi ef barn er í sóttkví. Við sendum upplýsingar til menntasviðs um þessar leiðréttingar samkvæmt skráningum í Mentor. Við hvetjum til að þið skráið sjálf inn, mikið álag er á símanum á morgnanna og mikilvægt að fá skráningar inn að morgni. En ef barnið ykkar er í sóttkví og þið hafið skráð veikindi eða leyfi á það er best að þið sendið póst á ritara skólans sem lagfærir skráninguna. Þið sendið á ritari.horduvallaskola@kopavogur.is og tilgreinið hvaða tíma á að skrá barnið í sóttkví. Ef barnið fer í sóttkví vegna smita innan skólans og við höfum tilkynnt um sóttkví þá sjáum við um að sú skráning verði rétt.
Ef þið ákveðið að hafa barn ykkar heima í sjálfskipaðri sóttkví lengur en tvo daga er mikilvægt að sækja um leyfi á þar til gerðu eyðublaði. Það er hægt að senda rafrænt beint til ritara.Hér er slóð á eyðublaðið https://www.horduvallaskoli.is/static/files/2017-2018/beidni_um_leyfi.pdf
Hér fyrir neðan er bréf frá menntasviði Kópavogs vegna nemenda sem eru að koma aftur í skólann eftir ferðir erlendis frá
Miðvikudagur 12.01., boðið er upp á bólusetningar barna í 1.-6.árgangi, sjá bréf frá menntasviði Kópavogs hér fyrir neðan
Frístund opnar kl 13:00 og er opin hefðbundinn tíma.
Skipulag skólastarfs næstu vikur
8.-10.árgangur er í sínum hefðbundnu töflum fyrir utan hádegismat sem er
- kl 12:00 fyrir 10.árg
- kl 12:20 fyrir 9.árg
- kl 12:40 fyrir 8. árg
- List- og verkgreinar eru í fjarnámi svo nemendur þurfi ekki að fara milli bygginga.
- Val vorannar hefst 17. janúar og verður kennt í fjarnámi til að byrja með til að forðast blöndun milli bekkja og árganga. Eins er stór hluti vals kenndur í Baugakór.
- Sérkennslusund fellur niður og þeir nemendur mæta með sínum hópi í sund.
- Blöndun milli bekkja er ekki og nemendum í 9.árg er skipt upp í tvo hópa.
1.-7.árgangur
- Allt skipulag í Baugakór byggir á að hólfa skólann niður í einingar þar sem í eru um 50 nemendur og ákveðinn hópur starfsmanna sem kemur að þeim nemendahópi.
- Allt sund helst óbreytt nema sérkennslusund fellur niður og þeir nemendur fylgja sínum bekk
- Frá 10.jan verða allir í íþróttum og hreyfingu að mestu á sömu tímum og þeirra hefðbundna stundaskrá segir til um
- Matartíminn verður eins og í þessari viku. 5. og 7.árgangur í stofum. 1.árgangur inni á gula gangi. Allir á sínum hefðbundnu tímum nema 2.árgangur mætir 12:20 í mat og 3.árgangur 12:40.
- List- og verkgreinar verða áfram í sama horfi og næsta vika eins og þessi. 17.1. færast list- og verkgreinakennarar milli hópa og svo aftur 31.1. Þannig er námsefni þessara vikna í þessum greinum kennt í tveggja vikna lotum.
- Að öðru leyti halda stundatöflur sér.
Þetta er skipulagið sem við göngum út frá en svo getum við auðvitað búist við að starfsfólk lendi í sóttkví eða einangrun og þá þurfum við að bregðast við því.
Þegar þetta er skrifað eru um 20 starfsmenn í sóttkví eða einangrun og annar eins hópur í smitgát. Starfsmenn skóla eru líka flestir að fá sína þriðju bólusetningu þessa dagana og margir veikjast eitthvað í kjölfar þess. Það eru því mikil forföll hvern dag og óljóst hvort þessi róður þyngist eða ekki. Það hamlar einnig að við sendum fólk ekki í kennslu milli þeirra eininga sem við erum að vinna útfrá. Við reynum að halda skólastarfi sem mest óskertu en eins og þið hafið eflaust mörg orðið vör við nú þegar þá gengur það ekki upp alla daga. Við getum þurft að fella niður tíma hjá mið og elsta stigi ef eru mikil forföll og jafnvel alveg niður í 4. bekk í síðustu tímum dags.