Fréttabréf Norðlingaskóla
1. apríl 2020
Efni þessa fréttabréfs:
- Varðandi skóladagatal
- Stærðfræðisnillingar í unglingadeild
- 7. bekkur flutti í Brautarholt
- Sjónlistadagurinn
- Skólahreysti
- eTwinning í Norðlingaskóla
- og fleira.
Varðandi skóladagatal
Starfsdagar í apríl, þ.e. 22. og 24. apríl verða felldir niður samkvæmt fyrirmælum frá skóla- og frístundasviði. Kennsla er þessa daga og nemendur mæta því í skólann eftir því skipulagi sem ríkir þá vikuna. Nánari upplýsingar koma síðar um hvaða breytingar verða á skóladagatalinu vegna niðurfellingu þessara starfsdaga.
Sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 23. apríl og er hann frídagur að venju.
Páskafrí hefst mánudaginn 6. apríl og skóli hefst að loknu páskafríi þriðjudaginn 14. apríl samkvæmt skipulagi sem umsjónarkennarar hafa sent foreldrum. Vinsamlegast fylgist vel með póstum sem koma frá skólanum vegna breytinga sem upp kunna að koma. Við óskum þess að nemendur og fjölskyldur þeirra eigi gott og gleðilegt páskafrí þó það verði eflaust með öðruvísi sniði þetta árið en oft áður.
Hér á eftir fylgja skemmtilegar fréttir úr skólastarfinu í mars.
Stærðfræðisnillingar í unglingadeild
Nemendur í unglingadeild hafa staðið sig frábærlega í stærðfræðikeppnum undanfarið.
Í Borgarholtsskóla fór þann 19. febrúar fram keppni þar sem nemendur í 8.-10. bekk í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ, Norðlingaholti, Kjalarnesi og Árbæ tóku þátt. Það er skemmst frá því að segja að þrír af okkar nemendum lentu í topp 10; þau Ísabella í 10. bekk, Óliver Jón í 9. bekk og síðastur en ekki sístur Alexander í 10. bekk sem gerði sér lítið fyrir og vann keppnina.
Tveir nemendur í 9. bekk, þeir Óliver Jón og Snæþór, eru svo komnir áfram í lokaumferð alþjóðlegu stærðfræðikeppninnar Pangea sem er fyrir alla nemendur 8. og 9. bekkja í grunnskólum landsins en keppnin er haldin í yfir 17 Evrópulöndum. 3.712 nemendur úr 73 skólum voru upphaflega skráðir til leiks en einungis 101 nemandi kemst áfram í lokakeppnina.
Stórkostlegur árangur hjá krökkunum og við óskum þeim innilega til hamingju.
7. bekkur flutti í Brautarholt
Sjónlistadagurinn
Skólahreysti
Furðuverur í 3.-4. bekk
eTwinning í Norðlingaskóla
Nemendur á miðstigi fá kennslu um stöðurafmagn
Veggmyndir eftir 10. bekk
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli