Fréttamolar úr MS
8. febrúar 2024
Vetrarönn að klárast
Það styttist í að vetrarönn ljúki og nú er mikilvægt að taka á því á lokasprettinum, mæta vel og skila sínu!
Hér eru nokkrar mikilvægar dagsetningar framundan:
8. febrúar: Viðureign MS og Kvennó í Gettu betur
15. febrúar: Ráðstefna nemenda í lokaverkefnisáfanga í félagsfræði í fundargati
16. febrúar: Síðasti kennsludagur annarinnar
19.-20. febrúar: Matsdagar
22. febrúar: Námsmatssýning
27. febrúar: Kennsla hefst á vorönn skv. stundaskrá
Gettu betur í sjónvarpinu í kvöld
MS mætir Kvennó í 8. liða úrslitum Gettu betur á RÚV kl. 20:05 í kvöld, fimmtudag. Við fáum takmörkuð sæti en ætlum að sjálfsögðu að fylla þau öll og styðja okkar fólk. Þau sem ætla að mæta í Útvarpshúsið Efstaleiti og vera í útsendingunni þurfa að skrá sig hjá Málfundarfélaginu, áhorfendur mæta kl. 19:30 og fá stuðningsmannabol á staðnum.
Hvetjum þau sem ekki komast til að fylgjast með í beinni útsendingu á RÚV kl. 20:05.
Rafræn vöktun að hefjast
Skólinn hefur fjárfest í öryggismyndavélum til að vakta verðmæti á jarðhæð Aðalsteins. Vöktunin er stöðugt í gangi og í samræmi við viðkomandi reglurverk.
Brautskráning úr MS 2. mars
Útskrift vetrarannar fer fram við hátíðlega athöfn í Holti, sal skólans, laugardaginn 2. mars kl. 11:00. Útskriftarefni hafa fengið póst með nánari upplýsingum.
Lífshlaupið
Nú er landskeppnin Lífshlaupið hafin og á fyrsta degi hlaut nemandi úr MS verðlaun á meðal framhaldsskólanna og vann kassa af Hleðslu👏
Við hvetjum nemendur til að skrá sig til leiks á lifshlaupid.is í Nemendalið Menntaskólans við Sund og fá stig og mögulega verðlaun fyrir sína hreyfingu! 🏃🚴🚶
Viðbrögð við jarðskjálfta
VIÐBRÖGÐ VIÐ JARÐSKJÁLFTA
(Tekið af vef Almannavarna ríkisins, september 2022 og staðfært af öryggisnefnd MS)
- Innandyra
Við jarðskjálfta getur verið hættulegt að hlaupa út úr byggingu. Reynið frekar að leita skjóls og vera kyrr á öruggum stað innandyra t.d. út í horni við burðarveggi fjarri gluggum. Ef þú er sofandi og vaknar upp við jarðskjálfta, haltu þá kyrru fyrir og notaðu kodda eða annað mjúkt til að verja höfuðið. Ef um stóran skjálfta er að ræða forðið ykkur út þegar fyrsta hrinan er yfirstaðin. Eftirskjálftar eru algengir. Ef það verður jarðskjálfti hafið þá eftirfarandi í huga:
- Húsgögn
Varist húsgögn sem geta hreyfst úr stað.
- Innihald skápa
Varist hluti sem detta úr hillum og skápum. Sérstaklega skal gæta varúðar í eldhúsi og þar sem hættuleg efni eru.
- Ofnar og kynditæki
Haldið ykkur fjarri ofnum og kynditækjum sem geta losnað frá festingum.
- Lyftur
Notið ekki lyfturnar í MS og látið fara yfir þær eftir að jarðskjálfti hefur orðið þar sem lyftur skekkjast oft í jarðskjálfta.
- Rúðubrot
Varist stórar rúður sem geta brotnað.
- Byggingarhlutar
Við mjög stóran jarðskjálfta geta hlutar úr byggingunni brotnað af og rúður splundrast. Haldi ykkur fjarri þeim stöðum þar sem hætta er á hrynjandi byggingahlutum.
Gott er að setja á minnið orðaröðina: KRJÚPA – SKÝLA – HALDA
Viskusteinn
Við viljum hvetja nemendur til að nýta sér starfsemina í Viskusteini. Þar geta nemendur fengið aðstoð við námið ekki síður en félagslega hvatningu. Til dæmis veitir Viskusteinn aðstoð varðandi heimildavinnu.
Auk þess verður líf og fjör í í febrúar, en þá mun Guðný Lilja standa fyrir opnum húsum fyrir nemendur á fimmtudögum. Markmiðið er að skapa félagslíf fyrir alla, byggja upp félagsmiðstöðva stemningu þar sem nemendur geta hist, gert skemmtilega hluti saman og fengið aðstoð við heimanám.
Baulan 2024 🎤
Söngvakeppnin Baulan fór fram í Gamla bíó fimmtudaginn 1. febrúar. Þar stigu á stokk fjöldi hæfileikaríkra MS-inga sem létu ljós sitt skína. Sigurvegari kvöldsins var Elísabet Arna Vésteinsdóttir sem söng lagið Unfaithful með Rihanna. Í öðru sæti var Dagbjartur Elí Kristjánsson sem söng It's my life með Cezar og vinsælasta atriðið var Another love með Tom Odell í flutningi þeirra Arons Vals Gunnlaugssonar og Marons Birnis Reynissonar.
Kynnar kvöldsins voru þau Embla Ósk Ólafsdóttir, formaður skemmtinefndar, og Oliver Einar Nordquist, ármaður SMS. Dómarar voru Diljá Pétursdóttir og Andri Már Magnason.
Keppendur stóðu sig öll frábærlega og það er ljóst að það skortir ekki hæfileikana hjá nemendum Menntaskólans við Sund.