Samspil 2015
Fréttabréf 2. tbl. 1. árg.
350 þátttakendur
Nánari upplýsingar er að finna á vef Samspils.
Útspil
Vegna fjölda áskorana var einu aukanámskeiði bætt við í Reykjavík og var það haldið 5. maí. Þátttakendur komu víða að og það mæltist mjög vel fyrir.
Hér fyrir neðan eru ummæli nokkurra þátttakenda.
- Námskeiðið var eitt stórt lærdómsferli frá upphafi til enda þar sem ég kynntist nýjum hugmyndum og lausnum í ræðum og kynningum Svövu Pétursdóttur, Tryggva Thayer og Bjarndísar Jónsdóttur
- Námskeiðið reyndist lifandi, áhugavert, skemmtilegt og um fram allt hvetjandi. Skipulag námskeiðsins gerði ráð fyrir virkni, umræðum þátttakenda og fyrirlestrum frá skipuleggjendum.
- Á Útspili í dag sá ég allskonar möguleika til að draga tæknina inn í kennsluna mína
- Fullt af áhugasömum kennurum að gera nýja hluti, deila spennandi efni, hjálpast að og hafa gaman.
Vefmálstofur
Haldnar voru tvær vefmálstofur, annarsvegar um samfélagsmiðla í námi og kennslu, stjórnandi var Svava Pétursdóttir (sjá hér) og hinsvegar um stafræna borgaravitund, stjórnandi var Sólveig Jakobsdóttir (sjá hér). Upptökur er að finna á vef verkefnisins.
Vefmálstofur um sköpun fara fram í maí
- 13.05. stjórnandi Salvör Gissurardóttir, Lektor við Menntavísindasvið HÍ
- 27.05. stjórnandi Erla Stefánsdóttir, Myndver grunnskóla Reykjavíkur
Þema maímánaðar er sköpun, tjáning, miðlun, læsi, upptökur og myndvinnsla.
Samfélagsmiðlar
Tenglum um upplýsingatækni í námi og kennslu á Pinterestborði okkar fjölgar stöðugt og það stefnir allt í að borðið verði það flottasta á Pinterst.
Á Twitter og Instagram notum við umræðumerkin #samspil2015 og #menntaspjall.
Leiðarbækur/Verkmöppur
Leiðarbókum þátttakenda hefur fjölgað mikið og sífellt bætist við fróðleikur og reynslusögur. Ómetanlegt er að fá að fylgjast með þeirri þróun sem þar á sér stað.
Hér fyrir neðan eru sýnishorn af leiðarbókum nokkurra þátttakenda.
- Fjóla Þorvaldsdóttir - http://fjolath.blogspot.com
- Linda Sólveig Birgisdóttir - http://lindasolveig.weebly.com
- Ólafía Lára Ágústsdóttir - http://loa723.wix.com/loa723
- Steinunn Inga Óttarsdóttir - http://steinunninga.weebly.com
- Kristín Guðnadóttir, Hulda Björk Guðmundsdóttir, Hjördís Ýrr Skúladóttir, Guðbjörg Pálsdóttir - http://hjordis13.wix.com/hraunvallaskoli
- Hans Rúnar Snorrason - http://hansrunar.krummi.is
Samspil 2015
Email: tbt@hi.is
Website: samspil.menntamidja.is
Phone: 5255934
Facebook: https://www.facebook.com/groups/samspil2015