Fréttabréf Hörðuvallaskóla
apríl-maí
Kæra skólasamfélag
Gleðilegt sumar og hjartans þakkir fyrir farsælt og gefandi samstarf og góð samskipti á liðnum vetri sem fór á stundum ekki of blíðum höndum um okkur. En nú horfum við til bjartari tíma enda hefur veðrið leikið við okkur frá páskum og heilsan eflist með hækkandi sól.
Eitt af því sem fylgir vorinu er að nemendur koma í síauknu mæli hjólandi í skólann og það finnst okkur frábært. Við viljum bara minna á að allir þurfa að vera með hjálma, muna að læsa hjólunum við hjólagrindur og nota hjólin ekki í frímínútum.
Framundan er Heimsmarkmiðavika þar sem unnið verður með heimsmarkmið 3, heilsa og vellíðan. Þá viku er skólastarf óhefðbundið og endar með styttri skóladegi föstudaginn 6.maí. Nánari upplýsingar um vikuna eru hér fyrir neðan.
Síðan taka við hefðbundnar vikur út maímánuð en honum fylgja þó föst vorverk, myndataka í 1., 5. og 10.árgangi, vorskóli fyrir verðandi 1.bekkinga, árshátíð elsta stigs og vorferðir. Í júní eru svo Hörðuvallaleikar og ferð í Guðmundarlund. Þriðjudaginn 7.júní eru skólaslit allra árganga. Nánari upplýsingar og tímasetningar verða sendar þegar nær dregur.
Bestu kveðjur úr skólanum
Þórunn Jónasdóttir
skólastjóri
Heimsmarkmiðavika 2.-6.maí
Í þessari vinnu blandast nemendur í 1.-2. árgangi, 3.-4.árgangi, 5.-7.árgangi og 8.-10.árgangi.
Skólaþing verður haldið í öllum hópum þar sem nemendur fá tækifæri til að ræða saman, setja fram sínar hugmyndir og hafa áhrif á skólasamfélagið sitt.
Stundatöflum er breytt, en skólabyrjun er sú sama og á hefðbundnum dögum nema á föstudag sem er uppbrotsdagur með styttri skóladegi. Þá mæta nemendur kl 9:00 og skóla lýkur kl 12:00. Morgundvöl er í boði fyrir nemendur í 1.og 2.árgangi frá 8:00-9:00 og frístund hefst kl 12:00 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. Sund fellur niður hjá 1.-7.árgangi, íþróttir og önnur hreyfing eru hinsvegar alla daga. Mikilvægt er því að nemendur séu klæddir eftir veðri og í fatnaði sem hentar til íþróttaiðkunar og útivistar. Allar list- og verkgreinar fléttast inn í vinnuna og valgreinar eru ekki kenndar þessa viku. Lok skóladags eru á svipuðum tíma og í hefðbundnu töflunum, 1.-4. árgangur klára sinn skóladag kl 13:30 og 5.-10.árgangur er búinn rétt um kl 14:00.
Við stefnum á að setja fréttir á heimasíðu skólans til að leyfa ykkur að fylgjast með þessari skemmtilegu og metnaðarfullu vinnu okkar sem við erum afar stolt af.
Armbönd til styrktar Krafti - félags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein
Í heimsmarkmiðavikunni er eitt af verkefnum nemenda á elsta stigi að búa til armbönd með áletruninni lífið er núna. Armböndin eru síðan til sölu á 2500 krónur og rennur andvirði þeirra til Krafts. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Virkilega verðugt verkefni sem vonandi margir sjá sér fært að styrkja.
Húsnæði Hörðuvallaskóla
Skólahreysti
Skólakór Hörðuvallaskóla
Það er gaman að segja frá því að nú þegar loksins er hægt að blása til hátíða og viðburða hefur skólakórinn okkar gert víðreist og Ása Valgerður kórstjóri er ötul við að finna hópunum verkefni.
Kórinn skiptist í þrjá kórhópa, 3.árgangur, 4.-5.árgangur og 6.-7.árgangur. Miðkórinn kom fram á barnamenningarhátið í Kópavogi 9. apríl síðastliðinn og söng þar með kórum frá Kársnesskóla og Smáraskóla en einnig tóku þau nokkur lög ein. Þau stóðu sig með stakri prýði og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.
Sami hópur var kallaður til með stuttum fyrirvara til að syngja við opnun á Náttúruvef í Salnum í Kópavogi 27.apríl.
Yngsti hópurinn 3.árgangur syngur á vorhátíð barnanna sunnudaginn 1.maí í Bessastaðakirkju og hvetjum við alla áhugasama til að mæta.
Síðan er stefnan að elsti hópurinn syngi á tónleikum Kórs Kársnesskóla í Salnum laugardaginn 21.maí.
Við erum svo að finna góðan tíma til að hafa tónleika hjá okkur áður en skólastarfi lýkur í vor. Kórhóparnir eru nokkuð stórir og til að allir sjái vel bæði á æfingum og tónleikum þurfum við að eignast kórpalla. Við auglýsum hér með eftir pöllum og ef einhver veit um palla til sölu þætti okkur vænt um að heyra frá viðkomandi.
Þessu öfluga starfi fylgja aðeins aukaæfingar hjá kórhópunum ýmist á skólatíma eða eftir að skóla lýkur og hefur mæting á þær æfingar verið mjög góð. Næsta skólaár verður stefnan sett á að hafa kórstarfið strax að skóla loknum á fimmtudögum.
Kórar frá Hörðuvalla-, Kársnes- og Smáraskóla saman í Salnum
Miðhópur skólakórs Hörðuvallaskóla - 4.-5.árgangur
Einbeittir söngvarar sem stóðu sig með stakri prýði
Skák
Sumarfrístund
Frá foreldrafélaginu
Kæru foreldrar og forráðamenn. Það er óhætt að segja að mikið líf og fjör hafi verið hjá okkur í foreldrafélaginu í mars mánuði. Við byrjuðum mánuðinn á að skipuleggja spilakvöld fyrir börn skólans þar sem við spiluðum félagsvist ásamt foreldrum. Við vorum mjög ánægð með mætinguna og allir skemmtu sér virkilega vel, við vorum með glæsilega vinninga fyrir börnin frá Nexus og Hamborgarafabrikkunni. Í lok mars hentum við í langþráð PáskaBingó. Þvílíkt stuð var hjá okkur, virkilega góð mæting og við erum alveg viss um að allt hverfið hafi heyrt gleðina og fjörið sem var í salnum hjá þessum frábæra hóp sem kom og spilaði BINGÓ. Endalaust mikið af bingóum heyrðist og 200 páskaegg gefin. Við viljum þakka 10. bekk fyrir hjálpina við að gera þennan viðburð svo ótrúlega skemmtilegan, með að standa sig svo vel sem bingóstjórar. Við erum komin á fullt að undirbúa vorhátíðina okkar sem verður 24.maí. Nánari upplýsingar um það koma fljótlega.
kær kveðja
Kolbrún Ýr formaður
Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn - viðmið frá Menntasviði Kópavogsbæjar
Við skiptum vetrinum í tvo hluta, sá fyrri er frá skólabyrjun fram í miðjan janúar og sá síðari frá miðjum janúar til skólaloka. Vissulega hefur þessi ársbyrjun verið um margt nokkuð brött í þessum efnum, sóttkví, einangrun og síðan erfið flensa hafa leikið marga grátt. En það breytir ekki því að mikilvægt er að fylgjast með og fara eftir verkferlum, það er best leiðin til að við getum í sameiningu stutt við nemendur í námi og starfi.
Bekkjarkvöld
Nú fara vonandi allir að taka við sér og halda bekkjarkvöld áður en skólaárið rennur sitt skeið á enda. Við viljum rifja upp hvaða verklag þarf að hafa í tengslum við bekkjarkvöld sem haldin eru í byggingum skólans. Svo er auðvitað hægt að halda bekkjarkvöld utandyra nú þegar vorið er komið á kreik.
- Við mælum með að nýta sal skólans fyrir bekkjarkvöld.
- Bekkjarfulltrúi fær lykla fyrir 15:30 hjá ritara.
- Bekkjarfulltrúar bera ábyrgð á að læsa útgangi sem notaður er.
- Bekkjarfulltrúar bera ábyrgð á því að athuga allar inngangshurðir í skólann séu læstar (ath sérstaklega miðrými undir stiga úti í port)
- Bekkjarfulltrúi skilar lyklum til ritara fyrir kl. 09.00 daginn eftir.
- Einnota borðbúnað skal koma með (glös, diska, servéttur og annað sem nota þarf). Ekki er veitt leyfi til að fara í eldhús skólans.
- Bekkjarfulltrúar skulu koma með hátalara eigi að spila tónlist. Ekki er gert ráð fyrir að nýta tæknibúr á bekkjarkvöldum nema sé sérstaklega um það samið og er þá einn fullorðinn ábyrgur fyrir að læra á tækin.
- Öllu rusli skal safnað saman í plastpoka og þeir skildir eftir fyrir utan salinn.
- Bekkjarfulltrúar ásamt foreldrum bera ábyrgð á því að umgengi um salinn eða það rými sem nýtt er og þá ganga sem gengið er um sé eins og komið var að.
- Bekkjarfulltrúar og foreldrar bera ábyrgð á því að börnin séu í salnum eða kennslustofu á bekkjarkvöldi en alls ekki á ferð um bygginguna. Einungis er gefið leyfi fyrir því að vera í stofu eða sal eftir því sem við á. Alls ekki skal gengið um annað svæði skólans.
- Ef nýta á kennslustofu þurfa kennarar að gefa leyfi fyrir því.
- Bekkjarfulltrúar og foreldrar bera ábyrgð á því að ganga um húsið og tryggja það að ekki sé skilið eftir rusl eða átt hafi verið við aðra hluti innan skólans.
- Ef salurinn er notaður er hentugt að loka hliðinu í stiganum, læsa inn á bláa gang og setja niður grind á rauða gangi, þá er svæðið umtalsvert minna sem þarf að fara yfir við lok skemmtunar.
- Ræstivagn er niðri við sal sem hægt er að nýta þegar gengið er frá eftir skemmtunina.